|
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi |
|
|
|
Heimilisfang Þorsteinsgötu, Borgarnesi Sími: 437 1444
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.borgarbyggd.is
Afgreiðslutími Gildir frá 1. janúar 2012 Kl. 6.30 – 22 alla virka daga Kl. 9 – 18 laugardaga og sunnudaga
Verð Fullorðnir 500 kr Börn 2010 kr Aldraðir 210 kr Öryrkjar 210 kr
Auka upplýsingar Sundaðstaða: 25 x 12,5 m útisundlaug, 3 vatnsrennibrautir, barnavaðlaug, 2 heitir pottar, annar með sérstöku kraftnuddi, iðulaug með frábæru nuddi, 12,5 x 8 m innilaug, eimbað beint úr Deildartunguhver, sánabað og góð sólbaðsaðstaða.
Líkamsrækt: Þreksalur til líkamsræktar. Þolfimisalur, íþróttasalur, Egoline ljósabekkur. Panta þarf sérstaklega tíma í sánabaðsklefa tímanlega fyrir hópa.
Aðstaða fyrir fatlaða: Sérstakir búningsklefar eru fyrir fatlaða eða þá sem vilja vera með sér búningsaðstöðu og lyfta er á milli allra hæða.
Almenningsíþróttir: Sérstök tilboð standa almenningi til boða í íþróttamiðstöðinni. Tímatafla Íþróttamiðstöðvarinnar þar sem fram koma æfingatímar einstakra deilda er hér til skoðunar. Nánari upplýsingar gefa formenn viðkomandi deilda og félaga.
Starfsmenn: 9 stöðugildi eru við íþróttamiðstöðina. Auk þess er íþróttafræðingur í fullu starfi sem sinnir ókeypis tilsögn í þreksal fyrir gesti okkar og sér auk um að leiðbeina í vatnsleikfimi og ungbarnasundi. Hægt er að fá einkaþjálfara í þreksalnum óski menn þess sérstaklega geng gjaldi. Um 160.000 gestir koma í íþróttamannvirkið árlega.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 09. janúar 2012 15:28 |