sundlaugar.is
Borði

Sundlaugin að Hlöðum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
( 14 Atkvæði )


Heimilisfang
Sundlaug Hlaðir í Hvalfirði
Hvalfjarðarsveit
Innrimel 3
Sími: 433 8980

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.hladir.is

 

Afgreiðslutími
Sumar 2012
Opnunartími sundlaugar verður alla daga frá 13.00 til 19.00
Lokað á þriðjudögum.

Sundlaugin opnar 1. Júní til 21. Ágúst 2012

Verð
Fullorðnir: 450kr
Börn (6-14 ár): 300kr

 

HlaðirHlaðir HlaðirHlaðir HlaðirHlaðir HlaðirHlaðir HlaðirHlaðir HlaðirHlaðir

 

Auka upplýsingar
Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á húsinu.

 

Félagsheimilið Hlaðir á Hvalfjarðarströnd


Félagsheimilið Hlaðir
Félagsheimilið Hlaðir er rólegur og fallegur staður við norðanverðan Hvalfjörð, um 45 mín akstur frá Reykjavík og 20 mín akstur frá Akranesi.

Félagsheimilið Hlaðir er með góðum veislusal/danssal sem tekur allt að 240 manns í sæti og hentar vel fyrir árshátíðir, veislur, ættarmót, fyrirtækjadaga, fundi, ráðstefnur, leiksýningar, tónlistarviðburði, handverksmarkaði, yogakennslu, fyrirlestra, kynningar, markaði og margt fleira. Salurinn er með stóru sviði og tjöldum, fallegum bar og rúmgóðu eldhúsi sem er vel tækjum búið. Hægt er að semja um aðgang að lauginni í tengslum við leigu á félagsheimilinu. Félagsheimilið er leigt út allt árið.

Tjaldsvæði að Hlöðum
Að Hlöðum er stórt tjaldstæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Sér aðstaða fyrir tæmingu salerna frá húsbílum og tjaldvögnum.

Annað
Margir þekktir staðir eru í nágrenninu svo sem Glymur í Botnsá, Harðarhólmi, Geirshólmi, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Hallgrímssteinn, Vatnaskógur, Hvalstöðin og gönguleiðirnar um Síldarmannagötur og Leggjarbrjót. Stutt er í veiði, golf, kirkju og hótel.

Upplýsingar fást hjá staðarhaldara:
Guðjóni Sigmundssyni síma: 660 8585
Félagsheimilið Hlaðir sími: 433 8877
Sundlaug Hlöðum sími: 433 8980
Heimasíða: www.hladir.is - Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

Athugasemdir
Skrifaðu athugasemd RSS
Nafn:
Netfang (skrifaðu netfangið þitt ef þú vilt fá svar):
 
Efni:
 
:D:):(:0::shock::confused:8):lol::x:P
:oops::cry::evil::twisted::roll::wink::!::?::idea::arrow:
 
Vinsamlega skrifaðu inn stafina sem eru á myndinni hér fyrir ofan

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 31. ágúst 2011 13:58
 



Deila |

Flöskuskeyti Póstlisti

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Ég er í forsvari eða starfa fyrir sundlaug.



Borði
Borði
swimming in iceland on Facebook

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins - senda inn frétt - tilkynna villu