|
Heimilisfang Ásvöllum 2 221 Hafnarfirði Sími: 512-4050
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.hafnarfjordur.is
Afgreiðslutími Gildir frá 1. janúar 2012: Virka daga 6:30-21:00 Laugardaga 08:00-18:00 Sunnudaga 08:00-17:00
Verðskrá Fullorðnir: 450 kr. (1 stakt skipti) Gufubaðstofa: 500 kr. (1 stakt skipti) Börn (5-17 ára): 110 kr. (1 stakt skipti) Börn (0-4 ára): frítt Aldraðir (67 ára+): frítt Öryrkjar: frítt
10 miða kort - fullorðnir: 3.300 kr. (330. kr skiptið) 10 miða kort - börn: 800 kr. (80 kr. skiptið) 30 miða kort – fullorðnir: 9.000 (300 kr. skiptið) 30 miða kort – börn: 2.300 kr. (77 kr. skiptið) 6 mánaða sundkort: 13.000 kr. 6 mánaða fjölskyldukort ( gildir fyrir 2 foreldra og öll börn þeirra undir 18 ára aldri): 21.000 kr. 12 mánaða kort fullorðinna: 23.000 kr.
Leigður sundfatnaður/handklæði: 600 kr. stk.
Auka upplýsingar Ásvallalaug var vígð 6. september 2008 í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Sundmiðstöðin er ein sú stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig heilsuræktarstöðin Hress í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun svo og félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar en þessi félög er með mjög umfangsmikla starfssemi í lauginni.
Sundmiðstöðin skartar 50 metra sundlaug sem að jafnaði er skipt með brú þannig að helmingur laugarinnar er 25m að lengd og hinn helmingurinn er 50 m. Í lauginni er jafnframt 17metra barnalaug (90-110cm djúp) og 10metra vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum. Hitastig barnalauganna er um 32°C á meðan hitastig sundlaugar er 28°C. Hitastig inni í salnum er ávallt um 30°. Innanhúss er einnig vinsæl vatnsrennibraut, þrír heitir pottar og eimbað. Utandyra eru tveir heitir pottar og mjög góð sólbaðsaðstaða.
Starfsemin í Ásvallalaug er með fjölbreyttasta móti en þar má nefna auk hefðbundins skólasunds og sundæfinga félaganna, waterpolo, blak, æfingar köfunarfélaga, æfingar kajakræðara, námskeið fyrir verðandi og nýbakaðar mæður, námskeið í bættum sundstíl, ungbarnasund, vatnsleikfimi ofl.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 09. janúar 2012 11:41 |