|
sundlaug seltjarnarnesi
Heimilisfang Suðurstrond 170 Seltjarnarnes Sími: 561 1551
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.seltjarnarnes.is
Afgreiðslutími Virka daga: 6:30-21:00 Um helgar: 8:00-18:00
Verð Fullorðnir (frá 18 ára) Stakur: 400 10 skipta: 2,900 3ja mán.kort: 9,000 1/2 árs kort: 14,000 Árskort: 24,000 Börn (frá 6 ára) Stakur: 120 10 skipta: 800 Árskort: 10,000 Leiga sundfata: 1.350 og 1.000 til baka Leiga handklæðis: 250
Auka upplýsingar Vatnið í lauginni kemur úr borholu í nágrenninu með mjög steinefnaríku vatni. Laugin er vinsæl hjá exemsjúklingum sem telja þetta vatn þurrka húðina minna en annað sundlaugarvatn.
- Pottarnir eru 4 með hitastigi frá 37° uppí 44° og þar af einn með nuddi.
- Það eru tvær sundlaugar, barnalaugin er með 35°heitu vatni og er notuð til sundnámskeiða yngri barna
- og til afslöppunar, en 25 metra laugin er með 29°heitu vatni fyrir sundfólk, sundleikfimi og leikja stærri barna og unglinga.
- Síðast en ekki síst er 3cm djúp vaðlaug með nokkrum leiktækjum fyrir þau yngstu og hitastigið er 37-38°.
- Á útisvæðinu er einnig mjög gott eimbað.
- Fjórir búningsklefar, tveir stærri inni og tveir útiklefar með sér sturtu og salernisaðstöðu.
- Að lokum er svo ágætis stór rennibraut.
Í sundlaug Seltjarnarness er glæsileg aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga.
Aðgangur klefans er þannig að segulkort er fengið í afgreiðslu sem opnar hann rafrænt og um leið og einhver er í klefanum logar rautt ljós á ganginum fyrir framan til merkis um að hann sé upptekinn. Eins er um öryggi að ræða því skynjarar segja til um hvort sé ekki örugglega hreyfing inni.
Hann er búinn 6 skápum og rúmgóðum sturtuklefa og salerni og sérstaklega hannaður með það fyrir augum að fatlaður einstaklingur getur komið með sína aðstoðarmanneskju óháð kyni.
|