|
Heimilisfang Herjólfsgata 10 220 Hafnarfjörður Sími: 555-0088
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.hafnarfjordur.is
Afgreiðslutími Vetur 2011/2012: Virka daga: 06:30-19:00 Lokað um helgar
Verð Fullorðnir: 450 kr. (1 stakt skipti) Gufa: 500 kr. (1 stakt skipti) Börn (5-17 ára): 110 kr. (1 stakt skipti) Börn (0-4 ára): frítt Aldraðir (67 ára+): frítt Öryrkjar: frítt
10 miða kort - fullorðnir: 3.300 kr. (330. kr skiptið) 10 miða kort - börn: 800 kr. (80 kr. skiptið) 10 miða gufukort: 4.000 kr. (400 kr. skiptið)
30 miða kort – fullorðnir: 9.000 (300 kr. skiptið) 30 miða kort – börn: 2.300 kr. (77 kr. skiptið)
6 mánaða sundkort: 13.000 kr. 12 mánaða kort fullorðinna: 23.000 kr. 6 mánaða fjölskyldukort ( gildir fyrir 2 foreldra og öll börn þeirra undir 18 ára aldri): 21.000 kr.
Leigður sundfatnaður/handklæði: 600 kr. pr. stk.
Auka upplýsingar
Sundhöll Hafnarfjarðar var fyrsta sundlaugin í Hafnarfirði. Í fyrstu var aðeins um útilaug að ræða við Krosseyrarmalir og var hún tekin í notkun árið 1943. Það var síðan árið 1953 sem Sundhöll Hafnarfjarðar var tekin í notkun eftir að byggt hafði verið yfir útilaugina.
Sundhöllin státar af innilaug sem er 25 metrar að lengd og 8.7 metrar í breidd og í dýpri enda laugarinnar er hún 3.2m djúp. Tveir rúmgóðir heitir pottar eru í afgirtum garði við bygginguna og eru þeir með öflugum nuddtækjum sem njóta mikilla vinsælda. Jafnframt eru í lauginni í bæði karla og kvennaklefum sérstakir saunaklefar sem eru þeir einu sinnar tegundar hjá sundstöðunum í Hafnarfirði.
Sundhöllin er þekkt fyrir sitt rólega andrúsmloft. Laugin er mikið notuð af eldri borgurum og íbúum í nágreinni laugarinnar, jafnframt sem Sundfélag Hafnarfjarðar er með hluta af sínum æfingatímum í lauginni og nemendur í Víðistaðaskóla og Engidalsskóla sækja þangað í skólasund.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. mars 2012 16:18 |