sundlaugar.is
Borði

Lágafellslaug Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
( 523 Atkvæði )

 

Íþróttamiðstöðin að Lágafell, Sundlaugin Lækjarhlíð

Heimilisfang
Íþróttamiðstöðin Lágafell
Lækjarhlíð 1a, 270 Mosfellsbæ
Sími í afgreiðslu 517 6080

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.mos.is/stofnanir

Afgreiðslutími
Sundlaugin er opin alla daga frá kl. 06:30 til 21:30
Helgaropnun frá 08:00 til 19:00

 

Verð

frá 1. janúar 2012:

Fullorðnir kr. 500
Fullorðnir 10 miða áfylling á kort ** kr. 3.200
** Áfyllingarkort - Moskortið kr. 500
Börn kr. 130
Börn 10 miða kort kr. 1.100
Gufubað ( Varmá) kr. 600
Gufubað 10 miða kort ( Varmá) kr. 4.500
Árskort kr. 28.000
Öryrkjar kr. frítt
Ellilífeyrisþegar kr. frítt



Handklæði kr. 550
Sundföt kr. 750
Leiga á sal (stór salur) kr. 7.500
Leiga á sal (badmintonvöllur pr.skipti) kr. 2.000
Leiga á bardagasal - litlu salirnir kr. 4.000
Leiga á gervigrasvelli 1/1 kr. 14.000
Leiga á gervigrasvelli 1/2 kr. 7.500

 

Varðandi aðra þætti gjaldskyldu

  • Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur og miðast við afmælisdag, framvísa verður persónuskírteini.
  • Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis gefið út af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra í Reykjavík, sem skal endurnýjað árlega.
  • Einnig eru þeir ekki gjaldskyldir sem framvísa skírteini Tryggingastofnunar ríkisins “grænu skírteini” vegna varanlegrar örorku, skírteini Blindrafélags “bláu skírteini” og umönnunarkorti "gulu skírteini" vegna sérstakrar umönnunar barns.
  • Börn byrja að greiða 1. júní árið sem að þau verða 6 ára.

Börn þurfa að vera orðin 10 ára til að fá að fara í sund ein án fylgdarmanns. ( Miðað er við afmælisdag viðkomandi s.k. reglugerð þar um).

 

 

LagafellslaugLagafellslaug LagafellslaugLagafellslaug LagafellslaugLagafellslaug LagafellslaugLagafellslaugLagafellslaugLagafellslaugSýna mér á korti

 

Auka upplýsingar
Skólasund er í innilauginni alla virka daga til kl. 18 og þriðju- og miðvikudaga til klukkan 20.

Íþróttasalurinn er opinn alla virka daga frá kl. 6:30 til 21:30 og um helgar frá kl. 08:00 til 19:00

Sundlaugarsvæðið í Lágafelli er fjölbreytt og ættu flestir að finna sér eitthvað sem hentar hverju sinni. Svæðið skartar 25 metra sundlaug, sem er glæsileg í alla staði. Fyrir þá sem vilja gera meira en að synda er hægt að velja um 3 mismunandi heita potta.

Tveir þeirra eru hefðbundnir heitir pottar með hitastig á bilinu 40-42 gráður. Sá þriðji er nuddpottur sem gott er að sitja í og slaka á og láta nudda þreytta vöðva. Hann er ekki eins heitur og hinir pottarnir.
Fyrir börnin og líka auðvitað hina fullorðnu er vaðlaug sem er tiltölulega grunn, hlý og hentar fyrir smáfólkið og þá sem vilja liggja útaf og slaka og njóta sólarinnar, sé hún í boði.

Fyrir þá allra hressustu á öllum ald, eru þrjár rennibrautir á svæðinu, ein opin breið um 12 metra og tvær lokaðar, mislangar, eða frá 33-43 metrum. Farið er upp glerjaðan rennibrautarturn og ferðin endar í lendingarlaug fyrir neðan, sama laug fyrir allar brautir, svo það er best að vera varkár og fylgja reglum!

Á svæðinu er einnig opið eimbað. Klefi á sundlaugarsvæðinu með bekkjum og sturtuaðstöðu.
Starfsfólk sundlaugarinnar vill ítreka við forráðamenn barna að fylgjast vel með börnum sínum þegar þau eru á svæðinu.

Innilaugin
Innilaugin er með stillanlegum botni og hentar því vel fyrir kennslu sem hún er óspart notuð í. Hún er einnig opin fyrir almenning meginhluta sumars (fyrir utan kennslutíma ) og seinni part dags, eftir að kennslu lýkur. Innilaugin er 16 metra löng.

 

Athugasemdir
Skrifaðu athugasemd RSS
Nafn:
Netfang (skrifaðu netfangið þitt ef þú vilt fá svar):
 
Efni:
 
:D:):(:0::shock::confused:8):lol::x:P
:oops::cry::evil::twisted::roll::wink::!::?::idea::arrow:
 
Vinsamlega skrifaðu inn stafina sem eru á myndinni hér fyrir ofan
Anonymous   2012-03-10
Best og þið eruð frábær....
Helena   2011-08-01
Prófaði þessa laug í gær. Ég hef komið í alls 49 sundlaugar á landinu og þessi er með þeim allra bestu. Aðstaðan bæði í búningsklefunum og í og við laugarnar öll hin besta. Kem pottþétt aftur!
Cecilia   2011-07-11
Þetta er ein sú allrabesta sundlaugin á öllu landinu. Og eitt af því góða er að það er frekar fátt venjulega í sundi, á kannski ekki að vera að gefa henni svona góð meðmæli þá mæta allir og allt verður troðið og þreytandi...Elska þessa laug!
Harpa   2011-06-19
Samskeytin í rennibrautunum eru algjör díl breiker. Vil helst hafa húð á barnsrössunum eftir sundferðir!
??????????   2011-06-06
Mætti vera 2 innilaugar ein djúp og ein grunn sem hægt er að stilla . því það er ömurlegt að maður getur ekki farið í innilaugina þegar það er skólasund ...ég er neflinlega oftast búinn í skólanum hálf eitt og er þá lengur alla hinadagana en þá er alltaf skólasund!!!!!!!!!!!!!!
Irma Gná  - :D   2011-06-02
Besta laug ever !!!! allt pörfegt !!
Hulda og family  - AWESOME   2011-01-16

BEST POOOL IN ICELAND

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. mars 2012 15:05
 



Deila |

Flöskuskeyti Póstlisti

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Ég er í forsvari eða starfa fyrir sundlaug.



Borði
Borði
swimming in iceland on Facebook

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins - senda inn frétt - tilkynna villu