|
Sundlaugarnar á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi lokaðar |
|
|
|
Það er búið að loka sundlaugunum á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi en sundlaugin í Borgarnesi er opin og er afgreiðslutími sá sami allt árið.
|
|
Afgreiðslutími Ylstrandar |
|
|
|
Ylströndin í Nauthólsvík verður áfram opin í hádeginu alla virka daga fram til 1. september frá kl. 11.00 til 13.00 einnig verður opið á síðdegis á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 17.00 til 19.00. Fram til 1. september er frítt fyrir alla á ströndina. |
|
Lokun sundlaugin á Egilsstöðum |
|
|
|
Sundlaugin á Egilsstöðum verður lokuð frá og með mánudeginum 20. ágúst í allt að hálfan mánuð vegna skipta á dúk í lauginni og annarra viðgerða m.a. á búnings- og baðklefum.
|
|
Nánar...
|
|
Álftaneslaug lokuð í næstu viku |
|
|
|
Álftaneslaug verður lokuð vegna viðgerða frá og með fimmtudeginum í næstu viku og lokuð til og með sunnudeginum. Laugin opnar aftur mánudag 20. ágúst klukkan 6:30. |
|
Sundhöll Selfoss lokar fyrr |
|
|
|
Föstudaginn 10. ágúst lokar Sundhöll Selfoss klukkan 19:00 v/ Olísmóts, opnum á venjulegum tíma á Laugardaginn.
|