|
Heimilisfang Grindarvíkurvegi 5 240 Grindavík Sími: 420 8800 Fax: 420 8801
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.bluelagoon.is
Afgreiðslutími og verð Kíktu hér til að sjá núverandi verðskrá: http://www.bluelagoon.is/Badstadur/Opnunartimar-og-verd/
Auka upplýsingar Bláa lónið er fullkomið dekur fyrir líkama og sál og býður upp á spennandi möguleika fyrir gesti. Má þar nefna nudd og spa meðferðir sem fara fram bæði ofan í lóninu og innanhúss, eimböð, sauna og foss sem gefur endurnærandi axlanudd. Eitt af því sem gerir Bláa lónið svo sérstakt er umgjörðin - hrein náttúran og hraunið sem umlykja lónið sem helst 37-39°c heitt allt árið um kring. Það er einstök upplifun að slaka á í hlýju lóninu á meðan virku efni þess leika um húðina. Steinefnin veita slökun og koma jafnvægi á húðina, þörungarnir næra og mýkja og kísillinn hreinsar og gefur húðinni slétta og fallega áferð.
Í nýtískulegri búnings- og baðaðstöðu hafa gestir aðgang að Blue Lagoon sturtugeli og hárnæringu. Allir baðgestir fá afhent Blue Lagoon rakakrem sem er tilvalið að bera á húðina að baði loknu.
Betri stofan er heillandi kostur fyrir þá sem vilja meira næði. Þar er að finna einkaklefa, innilaug, setustofu og einkaverönd með útsýni yfir lónið.
Lava Restaurant & Bar er glæsilegur veitingastaður sem er byggður inn í hraunið og myndar heillandi umgjörð fyrir gesti. Á Blue Café er hægt að fá fljótlega og holla rétti. Þar er einnig þráðlaus Internettenging.
Á Lagoon Bar á innilaugarsvæði er hægt að kaupa létta rétti með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför. Blue Lagoon verslunin býður upp á úrval Blue Lagoon húðvara sem og gjafavörur og minjagripi. Bláa lónið er opið daglega frá 8-21 (1/6-31/8) og frá 10-20 (1/9-31/5). Gestum er heimilt að dvelja í lóninu í 45 mínútur eftir lokun. www.bluelagoon.is
Á glænýjum útibar er hægt að fá sér hressingu svo sem hinn sívinsæla Blue Lagoon kokteil eða nýkreistan ávaxtasafa. Fyrir þá sem þora er Energy skotið vítamin og hollusta beint í æð.
Á útibarnum er einnig hægt að fullkomna spa upplifunina með því að prófa eldfjallaskrúbb og þörungamaska. Eldfjallaskrúbburinn og þörungamaskinn eru afgreiddir frosnir, án allra umbúða. Hægt er að ylja þá í lófa sér eða dýfa ofan í lónið í stutta stund til að mýkja þá áður en borið er á húðina.
Náttúrulegur eldfjallaskrúbbur fjarlægir dauðar húðfrumur og styrkir varnarlag húðarinnar og laðar fram ljóma hennar. Hvernig á að nota: Berið eldfjallaskrúbb varlega á andlitið og líkamann með hringlaga hreyfingum. Varist að bera skrúbb á augnsvæði. Hreinsið með jarðsjó.
Blue Lagoon þörungamaski er þekktur fyrir áhrif sín gegn öldrun húðarinnar. Hann örvar eigin kollagenframleiðslu húðarinnar og nærir hana. Hvernig á að nota: Setjið þörungamaskann í lófann og berið á andlit, háls og herðar. Varist að bera maskann á augnsvæði. Látið þorna í 10-15 mínútur og hreinsið af með jarðsjó.
|